1 - Inngangur
Þetta skjal lýsir hvernig söluaðilar geta nýtt sér Boðgreiðsluvefþjónustu Fyrirtækjalausna til að senda inn Boðgreiðslur.
Ef breytingar verða gerðar á vefþjónustunni verður gefin út ný útgáfa og söluaðili upplýstur um þessar breytingar.
Eldri útgáfa mun verða áfram virk í ákveðinn tíma, nema ef um er að ræða villu sem krefst tafarlausra breytinga.
Vinsamlegast hafið samband við Fyrirtækjalausnir Valitor til að fá testkortnúmer.
1.1 - Nýlegar breytingar
Undanfarið hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar á Boðgreiðslum Valitor:
1.1.1 - Notkun LaekkaBunka hætt
Notkun LaekkaBunka aðgerðarinnar í Boðgreiðsluvefþjónustu Valitor hefur verið hætt.
Sé hún notuð skilar hún einungis tómu svari.
Sjá nánar hér.
1.1.2 - Breyting á SkilaSyndarnumeriUtFraKortnumeri
Breyting hefur orðið á notkun svæðisins Gildistimi í kalli á aðgerðina SkilaSyndarnumeriUtFraKortnumeri.
Svæðið er nú nauðsynlegt.
Vinsamlegast athugið
Fyrir þá sem hafa þegar innleitt Boðgreiðslur Valitor verður svæðið valkvætt til 30. apríl 2020.
Að þeim tíma loknum mun aðgerðin hætta að virka sé gildistími korts ekki sendur með.
1.1.3 - Ný aðgerð BunkaSkrar
Nýrri aðgerð, BunkaSkrar, hefur verið bætt við Boðgreiðsluvefþjónustu Valitor. Sjá nánari upplýsingar um notkun hér.
1.2 - Vefslóðir
1.2.1 - Prófanaumhverfi
Slóð á prófanaumhverfi: https://api.processing.uat.valitor.com/bodgreidsla/bodgreidsla.asmx
WSDL: https://api.processing.uat.valitor.com/bodgreidsla/bodgreidsla.asmx?wsdl
1.2.2 - Raunumhverfi
Til að fá aðgang að raunumhverfi þarf fyrst að stofna söluaðilasamning við Valitor.
Við stofnun samnings verður raunaðgangi úthlutað samhliða.