2 - Ferlið
Til að senda inn boðgreiðslur er byrjað á kalli í vefþjónustuna HefjaSendingu. Sú þjónusta skilar BunkiID sem svo er notað við innsendingu.
Næst er kallað á vefþjónustuna SendaInn. Þegar að færsla er send inn er mikilvægt að bíða eftir svari með staðfestingu hvort innsending hafi tekist áður en næsta færsla er send af stað.
Þegar allar færslurnar hafa verið sendar inn er kallað á vefþjónustuna SendinguLokid. Það er mjög mikilvægt að gera þetta, því annars eru færslurnar ekki keyrðar inn í heimildarkerfi Valitor.
Eftir að sendingu er lokið hefur heimildarkerfi Valitor sjálfkrafa heimildarleit fyrir færslurnar. Vinnslutími heimildarleitar er mismunandi eftir stærð bunka. Bunki sem inniheldur marga tugi færslna getur tekið nokkra klukkutíma í vinnslu.
Vefþjónustan NidurstodurSendingar skilar niðurstöðum sendingar. Ef heimildarkerfi Valitor hefur ekki lokið keyrslu er villunni "352 Keyrsla innsendra færslna er ekki lokið" skilað.
Einnig eru til nokkrar aðrar vefþjónustur sem hægt er að nota, en eru ekki nauðsynlegar til að senda inn boðgreiðslur. Þessar eru útskýrðar í vefþjónustukaflanum.
Sú krafa er gerð að við innleiðingu Boðgreiðslna sé gert ráð fyrir því að vefþjónustur geti skilað öðrum villunúmerum en þeim sem eru upptalin í vefþjónustukaflanum. Með innleiðingu er átt við forrit sem sendir inn færslur. Seinna meir gætu vefþjónusturnar skilað öðrum villum en gert er í dag, t.d. gæti heimildarleit farið fram í rauntíma og þá kæmu ný villuskilaboð.
Þá virka forritin áfram sem senda inn færslur, án þess að það þurfi að uppfæra þau. Öllum notendum Boðgreiðslna verður þó tilkynnt um slíkar breytingar með góðum fyrirvara.
Ef ekki er kallað á SendinguLokid, verða færslurnar ekki keyrðar inn í heimildarkerfi Valitor. Slíkum færslum verður eytt úr gagnagrunni reglulega.