3 - Sýndarkortnúmer

Hægt er að senda inn sýndarkortnúmer í stað hefðbundinna kortnúmera.

Sýndarkortnúmer er 16 tölustafir þar sem tölustafir 2 til 6 eru 99999, t.d. 4999997698764321. Fyrsti tölustafur í sýndarkortnúmeri er sami og fyrsti tölustafur í kortnúmeri. Sýndarkortnúmer standast modulus-tékk kortanúmera. Númerin eru ekki búin til útfrá kortnúmeri og er því ekki hægt að afbrengla og finna þannig út kortnúmer á bak við sýndarkortnúmer. Sýndarkortnúmer er eingöngu hægt að nota með samningsnúmerum sem tilheyra sömu kennitölu og gefin var upp þegar sótt var um sýndarkortnúmer og er einungis hægt að nota þau með veflausnum Valitor.

Vefþjónustan SkilaSyndarnumeriUtFraKortnumeri skilar sýndarnúmeri út frá kortnúmeri. Við sýndarnúmerainnsendingar er nauðsynlegt að kalla á SkilaSyndarnumeriUtFraKortnumeri ef kortnúmer er ekki sýndarnúmer.
Ef reynt er að senda inn venjulegt kortnúmer í sýndarnúmerainnsendingu skilar þjónustan villu.

Ef bunki er sendur inn sem sýndarnúmerasending, þá verða öll kortnúmer í bunkanum að vera sýndarnúmer.

Warning

Frá og með 31.Október 2020 uppfyllir vefþjónustan SkilaSyndarnumeriUtFraKortnumeri ekki skilyrði reglugerðar um sterka auðkenningu (SCA). Eldri kort, skráð fyrir 31.Október 2020, eru þó undanþegin þessum skilyrðum. En nýjar skráningar eru í meiri áhættu á að verða hafnað af útgefendum korta. Vinsamlegast verið í sambandi við Valitor til að fá upplýsingar um nýjar þjónustur sem uppfylla að fullu skilyrði reglugerðar um sterka auðkenningu.